Hélt staffa-djamm heima hjá mér þann 16 júní, almenn ölvun var á meðal fólks, sumir heltu í sig ansi öfulgri bollu, aðrir drukku bjór og sumir ákváðu að detta oní skurði... eftir partýið var síðan farið á Pravda, sem mér fannst alveg einstaklega VOND hugmynd, en hvað gerir maður ekki fyir "team-work" ??) (... Styrmir, maður hefur nú grætt á því að kíkja á Pravda...hihihihih)
VISSIR ÞÚ AÐ.... ef þú vilt láta geyma símanúmerið þitt í e-n ákveðinn tíma, þarftu EKKI að skila símtækinu í næstu símaverlsun.....!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Uss... nú er fokið í flest, ÉG er farin að fara í sund á morgnana og það sem meira er, að ég hef ekki bara farið einu sinni og svo aldrei aftur, heldur fer ég bara morgun eftir morgun, syndi mína metra, sem fer ört fjölgandi með hverjum morgni. HARKA, ha??
LJÓTIR STELIÞJÓFAR!!! Árbærinn er nú meira gettóið , skrapp í sund um daginn og þegar ég kom út aftur voru einhverjir snillingarnir búinar að laga til í bílnum mínum svo um munar, græjurnar horfnar eins og þær legggja sig og búið að tæma veskið mitt.... ...og ég fór að spá, hvað er í gangi... afhverju í ansk er ekki hægt að eiga nokkurn skapaðan hlut án þess að maður þurfi að vera hræddur um að honum sé stolið?? Og það á hvítasunnudag, taka þessir ræflar sé aldrei frí??? Við erum örugglega sammála um að lífsgæðunum er mjög misskipt, en flest okkar höfum unnið hörðum höndum að því sem við eigum og þess vegna alveg gjörsamlega óþolandi að einhverjir skuli bara stela því sem maður hefur unnið fyrir á heiðarlegann hátt.
Tölvuleikir... ég er í þannig vinnu að ég þarf að tölvunördast frekar mikið og þar sem ég og tölvur höfum ekki verið bestu vinir í gegnum árin, leiðir þetta af sér nokkra tæknilega örðugleika.... 100 forrit til að læra á og endalausa stríðni frá KK vinnufélögum... en MINN TÍMI MUN KOMA eins og mælt var forðum, og mun hann koma fyrr en seinna!!!
Wúú húú, ég var að fá vinnu núna rétt fyrir páska, sumarvinnunni er borgið og ég er HÆTT AÐ SKÚRA. Ég er semsagt orðin símadama hjá Símanum í aukavinnu og sumarvinnan er ekki alveg ákveðin!!
Hamborgaraveisla a la Arnar.... OHH .... þvílík sæla sem gekk yfir blessuðu Bollagötuna um helgina... Og afhverju? Jú drengurinn okkar, hann Arnar kom heim í smá heimsókn beint frá DK og eldaði hamborgara oní uppáhalds meðleigendurna sína (s.s. mig og Kristínu). Auðvitað kunni drengurinn sitt fag og gleðin og hamingjan skein úr allra augum eins og þessi mynd ber með sér. Elsku Arnar, snilld að fá þig í heimsókn!!!